mánudagur, 10. september 2007

Testósterón 2007 á netinu...


Online Videos by Veoh.com
"Hér líka"
HALDIÐI ekki bara að snillingurinn og Hreppakappinn hann Sigurbjörn bróðir minn hafi reddað heimildamyndinni góðu á netið. Hér getið þið séð hana. Hún er reyndar ekki í bestu gæðunum þarna en er þó sjáanleg. Þeir sem vilja fá hana í alvöru gæðum verða bara að láta mig vita. Svo verðum við að hittast svo þið getið fengið hana á "flakkara" eða þið getið komið til mín skrifanlegum disk. ENJOY!

EL GRJÓNÓ

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

bestu 42min og 18 sek ævi minnar... :D

Nafnlaus sagði...

ég vil nú bara benda á það að það er ekki vel séð að blanda saman áfengi og íþróttum allavega ekki svo allir viti ég veit að hreppurinn og fleiri eru ekki tilbúnir að stiðja við bakið á okkur ef það er mikið um svona svo ég myndi taka myndbandið og klippa það út sem ekki á að vera þar vildi bara benda ykkur á það sem ég hef heyrt svo það skemmist ekki það sem búið að að vinna að kveðja Fossbúinn

Akstursíþróttafélag HreppaKappa sagði...

Fyrsta atriði. Áður en sá hluti myndbandsins kemur þar sem við erum að skemmta okkur, kemur orðið "Menning" yfir skjáinn til þess að sýna fram á að þá séum við ekki að hjóla.
Annað atriði. Í lokin stendur að ekkert hafi verið hjólað á Akureyri því þar hefði bara verið "menning".
Þriðja atriði. Við sjáumst aldrei nálægt hjólunum með áfengi.
Fjórða atriði. Gummi er með LÝSI í bílnum þegar hann er að skála. Og Egill er með tóma dós sem var í bílnum.
Fimmta atriði. Þeir sem eru það mikið á móti þessu félagi, að fara að ýkja þetta til muna og dreifa sögum, þeir koma ekki til með að fara á síðuna okkar og horfa á þetta myndband og misskilja það líkt og þú hefur gert.

Sá sem veit e-ð pínulítið um motocross myndi vita að maður hjólar ekki undir áhrifum. Í fyrsta lagi hefðum við allir slasast ef við hefðum haft þetta þannig. Og við hefðum ekkert náð að endast því þetta er hrikalega erfitt líkamlega. ENGIN DRYKKJA FÓR FRAM Í HJÓLAMENNSKUNUM SJÁLFUM. En að sjálfsögðu fengum við okkur bjór á kvöldin. Og þeir sem dæma okkur fyrir það eru mjög líklega hræsnarar. ,,Sá yðar sem syndlaus er...."

Sigurjón Snær Jónsson
Formaður AHK, skipuleggjandi Testósterón 2007, upptökustjóri Testó2007 og klippari Testó2007.

Nafnlaus sagði...

ég var nú ekki að segja að ég hefði eitthvað á móti þessu aða að ég hafi misskilið þett eitthvað ég var bara að segja ykkur frá því sem mér var sagt og vildi bara láta ykkur vita einfaldara gat það ekki verið kveðja Fossbúinn

Akstursíþróttafélag HreppaKappa sagði...

Enda var ég ekki að ráðast á þig. Ég var bara að taka ábyrgð á málinu og rökstyðja okkar hlið. Og þú mátt gjarnan segja þetta við menn sem eru að tala um að við höfum verið drukknir á hjólunum. Við verðum allir að vinna saman að því að hafa jákvæða ímynd.
Þetta var alls ekki persónulegt svar á þig. Ég hafði bara aldrei getað ímyndað mér að einhverjum myndi detta þessi vitleysa í hug.

Allt í góðu.

EL GRJÓNÓ

Nafnlaus sagði...

Svakalega var gaman að kíkja á þessa klippu ykkar. Þetta er frábært framtak hjá ykkur og gott að það sé komin aðstaða í grifjunum á Grafarbakkanum .. búin að horfa á þessar moldarhrúgur þar með þetta í sjónmáli í möööörg ár.. og nú er það komið. Snilldinn ein