þriðjudagur, 18. mars 2008

Það er babb í bátnum...

Tekið af Morgan.is:

"Frá Þykkvabæ
Tuesday 18. March 2008, 09:34
Góðan dag,

Nokkrir ábúendur í Þykkvabæ eru orðnir ansi þreyttir á umferð hjóla í Þykkvabænum. Ástandið er orðið hreint út sagt eins og að búa við Laugaveginn nema hvað umferðarhraðinn er talsvert meiri.

Íbúðarhúsið mitt er t.d. rétt við veginn og útihúsin hinum megin við veginn - umferðarhraðinn er að lágmarki 90 km/klst framhjá stofuglugganum hjá mér.

Hávaðinn frá hjólunum er mjög þreytandi og engu líkara en að einhver sé að vinna allar helgar með loftpressu í nágrenninu.

Það er m.a. búið að keyra niður girðingar hjá okkur.

Við erum búin að fjárfesta tugi milljóna í okkar landi til að stunda okkar búskap og útivist og því eðlilegt að menn geti þó ekki nema gengið yfir götuna án þess að leggja sig í stórhættu vegna hraðaksturs.

Hér eru tamningamenn við vinnu sína og ekki eðlilegt að að þeir geti ekki notað sínar landareignir til að vinna í sínum hrossum - þið verðið að muna að Þykkvabæjarfjara er ekki almenningur heldur í einkaeigu Þykkbæinga.

Kveðja,
Kristín Bjarnadóttir
Stóra-Rimakoti "


Jæja strákar. Hvað gerum við nú? Ætlum við að vera plága eða eigum við að sýna tillitssemi og reyna að færa hjólaríið eitthvert annað? Er eitthvað hægt að notast við gryfjurnar í Þjórsárdalnum eða vitið þið um svæði sambærilegt Þykkvabænum sem hægt er að notast við? Það er nú ekki nógu gaman að þessu ef maður veit af óánægðum landeigendum.

EL GRJÓNÓ

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég held að við ættum að sleppa þessu það spáir heldur ekki vel

Andri

Nafnlaus sagði...

reina frekar að géra eitt hvað á laugardaginn þó það væri ekki nema hitast í einhverjum grifjum eða eitt hvað

Andri

Nafnlaus sagði...

ógeðslegt veður á fimtudaginn hjá búrfelli á að vera -13°og 12m/s þá er að svona -35°

Nafnlaus sagði...

verður farið á morgun??? og verður gert eitt hvað 22??