mánudagur, 21. apríl 2008

Skráningarfrestur á mótið rennur út klukkan 12:00 föstudaginn 25. apríl...

Ég er að setja upp keppnisfyrirkomulagið og það væri gott ef allir gætu skráð sig sem fyrst. Ég nenni ekki að hlusta einhvern skrá sig á mótið 5 mínútum eftir að það byrjar og kvarta síðan undan því að það sé ekki skipulag í gangi. Ég er búinn að henda upp uppkasti að fyrirkomulaginu. Það má sjá hérna niðri. Númerin í reitunum standa fyrir rásröðina. Hún gæti breyst eitthvað og gerir það að sjálfsögðu ef fleiri bætast við. Undir rest gæti verið stutt á milli umferða hjá mönnum en það verður bara að hafa það. Ætlunin er að breikka brautina og hafa hana styttri. Það eykur möguleika á framúrakstri en styttir hringinn þannig að við munum líklega hafa 2 eða jafnvel 3 hringi í hverri umferð.

Smellið á myndina til þess að sjá hana betur.



Og ég fékk póst varðandi keppnisnúmerin. Þeim verður úthlutað í næstu viku og þá ætla ég að sækja um þau aftur. Ég læt ykkur vita hvernig það fer.

EL GRJÓNÓ

Engin ummæli: