sunnudagur, 12. ágúst 2007

Testósterón...

Jæja, ég var að ljúka við að klippa saman heimildarmyndina um ferðina góðu sem við kölluðum Testósterón 2007. Nú þarf ég bara að finna stað fyrir hana á netinu svo þið getið sótt hana. Hún er 511 mb þannig að ef þið vitið um svæði sem geymir svo stórar skrár, þá megið þið láta mig vita. Og í framhaldi af því vill ég gjarnan fá að heyra hverjir ætla sér að koma með í Testósterón 2008. Þó að nafnið verði kannski mis-viðeigandi næst því í þessum 7 manna hópi sem þegar er skráður í ferðina, eru tvær dömur. Kannski við verðum að breyta titilinum í Estró-Testó-2008. Það er best að menn taki bara vikurnar fyrir og eftir 17. júní á næsta ári frá strax. Þá þarf ég ekki að hlusta á menn sem tala um að koma en muna svo á síðustu stundu eftir því að þeir hafi ætlað gera eitthvað annað. Takið dagana frá áður en þið klínið einhverju öðru á þá. Og ég mæli með ferðinni því hún er hrikalega góð.

EL GRJÓNÓ

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Halló!!
Anna Maren hérna, ég er að bíða mjög spennt eftir myndum frá Skaganum hehe:D,
mátt endilega setja þær inn því ég er að trompast hérna, bíð svo spennt hehe=D

Nafnlaus sagði...

Hæ!
Já ég þarf að fara að drullast til þess að sinna þessu betur...
Þarf líka að fá myndirnar hjá Jónsa. Svo verður hjólað á morgun (þriðjudag)...

SEE YOU!