miðvikudagur, 19. september 2007

Jón er ekki sama og Sigurjón. en reynum.

Jæja þá er undirritaður tekinn við síðuni. Allavega meðan lögfræðingur Hreppakappa lærir að verða lögfræðingur. En ég ætla að reyna mitt allra besta til að láta síðuna ganga eins vel og hjá EL-Grjónó þó það verði erfitt. Og ef einhverjar spurningar eða einhver óánægja er er um að gera að senda mér línu og við lögum það í sameiningu. Testasterón 2008, er eitthvað sem við verðum að fara plana, ég ætla að henda inn á næstuni nokkrum hugsanlegum plönum varðandi hvenar við færum af stað og hvar við munum enda, og hvaða brautir við komum til með að hjóla í. Þetta er eitthvað sem við verðum allir að taka þátt í að plana. Þegar við erum komnir með plan skal ég fara ofan í gististaðina. Mig langar að mynna ykkur sem áhuga hafa á að Langasands-keppnin er 29 september það gæti verið gaman að kíkja á það.
Ég hef svo sem ekkert meira að seigja í bili nema að ég vona að þið séuð sátt við þessa breytingu á umsjónarmanni á síðuni.

Kveðja Jónsi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er í viðskiptafræði og ætla að verða endurskoðandi... Skemmtilegra að hafa það á hreinu áður en fólk biður mig um lagaráðgjöf... :)