Svo var gert grín að "motocross-kennslu-dansinum" mínum sem gerði það gott á Útlaganum síðustu verslunarmannahelgi. Segðu mér Jónsi, er þetta í manual-num eða fékkstu einkakennslu hjá Herr Katoom og Adda "make-up"?
14.1.2008 ...að það séu yfir 6 sleða skráðir í félagið ...að þeir séu allir nothæfir í smá ferðalag um hálendið. ...að það er snjór á hálendinu ...að þeir séu af öllum gerðum. ...og að eigendurnir ættu að fara í ferð til að fá úr skorið hvaða merki sé best. 6.1.2008 ...að sagan endurtaki sig með því að menn séu spenntari fyrir Estró-Testó-2008 en komandi utanlandsferðum. ...að tvígengis Hondan hafi staðið á toppnum á Hellu og litið niður á fjórgengis-kjammana í brekkunum. ...að Team Kawasaki hafi verið þar við æfingar og verið mjög hraðir. ...að mikill metnaður sé fyrir hjólamennskum árið 2008. ...að það verði til þess að 2008 verði alveg magnað ár. ...að menn séu farnir að hafa áhyggjur af þolinu og séu farnir að spá í skokki, körfubolta og box-i. ...að skíði og belti sé farið að heilla menn með motocross-hjól. ...að svoleiðis búnaður kosti hvítuna úr augunum þegar maður er ekki Björgólfur eða Jón Ásgeir. 16.12.2007 ...að Hrunastoltið sé Suzuki ofar. ...að formaður sé ánægður með það. ...að menn séu tilbúnir að setja allt sumarfríið sitt í EstróTestó2008. ...að þeir menn eigi rétt á 11 vikna sumarfríi. ...að það dugi fyrir Íslands-, Evrópu- og Ameríkutúr. ...að hið rétta sé 6 vikur. ...að menn vilji fá skilning í ferðinni vegna reynsluleysis. ...að Pajero sport hafi bara verið með kverkaskít og eyði nú ekki meira en meðal-Colt. ...að Jónsi og EL GRJÓNÓ séu komnir með grunsamleg tengsl við þotuliðið/elítuna. ...að menn geti orðið mjög sárir í tegunda-rígnum sem er svo nauðsynlegur þar sem karlmenn koma saman í svona félagsskap. ...að "Kjammar", "Geymaheimaha", "Klárlega Tæknileg Mistök", "Vonda", "Súsökkí" og "Krappasakki" séu víst allt tegundir sem hægt er að finna innan Hreppakappa þó enginn vilji viðurkenna að eiga svoleiðis.
4.12.2007 ...að jafnréttisbarátta sé farin að hafa áhrif á stjórn AHK. ...að nýtt Yamaha sé á leiðinni. ...að tvígengishjól séu að líða undir lok í félaginu. ...að KTM 200 4-stroke sé jafnvel á leiðinni í staðinn fyrir 125 2-stroke. ...að 6 cylendra Pajero sé fyrir forstjóra en ekki EstróTestó2008. ...að hægt sé að spara sér flugmiðann til Ameríku að versla motocross-dót. Þar fáist ekkert fyrr en eftir 4-5 daga og að best sé að fara bara beint í tölvuna. ...að Júdas sé farinn að finnast í AHK. ...að Suzuki ætli að bjóða betur. ...að Einarssynir hafi farið og fengið sér eins hjól. Að Honda hafi að sjálfsögðu verið fyrir valinu.
1 ummæli:
Adda meik kvaerretta maður :)
Skrifa ummæli